Fékk nóg af umræðu um einelti

Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri telur að öll hin gríðarlega vinna og umræða um einelti í samfélaginu hafi engu skilað. Soffía setur fram skoðun sína í eigin nafni í færslu á Facebook og tekur fram að hún skrifi hana ekki sem fræðslustjóri. Eigi að síður má ætla að Soffía hafi myndað sér skoðun að nokkru leyti vegna starfa sinna, en hún gegnir stöðu fræðslustjóra á Akureyri.

Blásið var til eineltisátaks nýverið sem náði hápunkti með sjónvarpsþætti á Rúv um helgina.

„Ég veit ekki hvað gerðist!
En allt í einu fékk ég nóg. Algjörlega nóg af umræðunni um einelti. Eftir að hafa horft og hlustað á auglýsingarnar undanfarna daga og eftir að fylgjast með milljónasöfnun til að opna Samskiptasetur fyrir þá sem glíma við einelti þá bara allt í einu fór þetta yfir markið í hausnum á mér,“ skrifar Soffía í stöðufærslu sinni.

„Ef öllum þeim milljónum sem hefur verið varið til að auglýsa einelti, skilgreiningar á því, rauða, gula, græna og hvíta kallinn í liðinu, tala um neikvæða og hræðilega birtingarmynd samskipta milli fólks eftir að orðið einelti var fundið upp, held ég að þeim fjármunum hefði verið betur varið í að innprenta, auglýsa og kenna hugtökin kærleikur, samkennd, samlíðan, hjálpsemi, heiðarleiki, réttlæti og mannréttindi. Í raun að „markaðssetja“ þjóðgildin sem þjóðin valdi sér eftir hrun en gerði svo ekkert við,“ bætir hún við og heldur áfram:

 „Öll þessi gríðarlega umræða og vinna í skólum, á vinnustöðum, í samfélaginu öllu um einelti og neikvæð samskipti virðist bara engu hafa skilað. Einelti heldur áfram, fólk er vont hvert við annað, börn eru óvægin, orðljót og illhvittin og níðast hvert á öðru, niðurrifsfeisbókarskrifin blómstra hjá fullorðnum sem aldrei fyrr og nú ætlum við að opna samskiptasetur fyrir þá sem glíma við einelti.“

Soffía mælir með annarri leið: „Hvernig væri að foreldrar gæfu sé meiri tíma heima til að tala við börnin sín um falleg samskipti og kærleiksríka framkomu? Snúum þessu í jákvæða nálgun, tölum um og kennum og kynnum þjóðgildin og notum svo listina til að krydda þetta með. Ég hef þá trú að útkoman geti orðið miklu betri.“

Ef marka má jákvæð viðbrögð og fjölda deilinga á facebook við skrifunum þykir Soffía hafa hitt á áhugaverðan tón.