Fékk köllun eftir taumlausa drykkju

Davíð Þór Jónsson héraðsprestur á Austurlandi segir fortíð sína sem grínara og uppistandara hafa unnið gegn sér í leit að brauði eftir hann kláraði guðfræðina í Háskóla Íslands og vígðist til prests. Hann segir að bjarga þurfi kirkjunni frá prestunum; færa þurfi valdið frá þeim til fólksins.


Þetta kemur fram í nýjasta hefti tímaritsins MAN þar sem séra Davíð Þór prýðir forsíðunni, en hún er fræg fyrir þær sakir að Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi innanríkisráðherra átti að vera á henni en var tekin þaðan eftir að hún gaf Íslandi í dag sama viðtalið og hún hafði veitt tímaritinu, en eigendur MAN töldu sig hafa einkaviðtal við hana í höndunum. Skipt var um forsíðu sama dag og Hanna Birna birtist í sjónvarpsþættinum.


Davíð Þór talar tæpitungulaust um prestskapinn í tímaritinu, en köllunina fékk hann fyrir áratug þegar hann neyddist til að endurskoða líf sitt eftir langvarandi stjórnlausa neyslu áfengis.Hann segir að menn eigi ekki í öllum tilvikum að telja trúarbrögðin merkileg: "Meðan trúarbrögðin eru farvegur fyrir fólk til að að iðka sína trú í kærleika eru þau góð en þegar þau fara að vera heftandi fyrir frjálsa hugsun og skoðanaskipti, eins og þau eiqa sér sögu um að verða, eru þau ekki góð," segir hann í MAN.