Fékk brunasár á höndum og fótum

Starfsmenn Landhelgisgæskunnar sem fundu flak sjóflugvélarinnar á Barkárdal í fyrradag segja að Arngrímur Jóhannsson hafi verið á fótum og í þokkalegu ásigkomulagi þegar hjálpin barst, en með brunasár á höndum og fótum.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að vélin, sem er lítil einshreyfils sjúflugvél, var ný­fyllt af eldsneyti þegar hún hóf sig á loft frá Akureyir upp úr hádegi á sunnudag, en til stóð að fljúga henni til Kan­ada með stoppi á Græn­landi. Ann­ar mann­anna tveggja sem voru í flug­vél­inni lést en Arn­grím­ur Jó­hanns­son, fyrrverandi for­stjóri flug­fé­lags­ins Atlanta, komst lífs af. Hann fékk hins veg­ar bruna­sár á hönd­um og fót­um en var að öðru leyti frem­ur vel hald­inn þegar björgunarsveitarmenn komu að hon­um að sögn Auðuns Krist­ins­son­ar, starf­andi fram­kvæmda­stjóra aðgerðasviðs hjá Land­helg­is­gæsl­unni sem rætt við við í blaðinu í dag.

Auðunn stýrði leit­ar- og björg­un­araðgerðinni. Að sögn hans var leit­ar­svæðið loftlín­an á milli Ak­ur­eyr­ar og Reykja­vík­ur. Þrátt fyr­ir stórt leit­ar­svæði gekk vel að þrengja leit­ina og ein­ung­is þrem­ur og hálfri klukku­stund eft­ir að til­kynn­ing barst Gæsl­unni fannst flak flug­vél­ar­inn­ar, eða klukk­an hálf­níu í fyrra­kvöld. „Það sem við höfðum í hönd­un­um áður en leit hófst var það að vél­in hefði lagt af stað frá Ak­ur­eyri klukk­an 14 og átti að koma 16.20 til Kefla­vík­ur. Við höfðum því í raun mjög lítið í hönd­un­um en náðum að þrengja leit­ar­svæðið með því að hringja á sveita­bæi sem eru á þess­ari leið, auk þess að leita á því svæði þar sem líklegasta flug­leiðin var. Því náðum við fljót­lega að þrengja leit­ina að sunn­an­verðum Trölla­skaga,“ seg­ir Auðunn.

Hann seg­ir að flug­vél­in hafi verið á eðli­legri leið í átt til Kefla­vík­ur miðað við brot­lend­ing­arstaðinn. „Við sett­um af stað vinnu­hóp sem hringdi á sveita­bæi og það voru nokkr­ir ein­stak­ling­ar sem höfðu séð vél­ina,“ seg­ir Auðunn. Hann seg­ir að miðað við upp­lýs­ing­arn­ar sem voru fyr­ir hendi hafi sá tími sem leið þar til vél­in fannst verið ásætt­an­leg­ur. ,,Við vor­um mjög ánægð að finna vél­ina fyr­ir myrk­ur. Lág­skýjað var og skýja­far fór lækk­andi og við viss­um að við vor­um und­ir tíma­pressu hvað myrkrið varðaði,“ seg­ir Auðunn, við blaðið.

Hann seg­ir að veður hafi verið þung­búið og súld í hlíðunum, hiti nokkr­ar gráður en ekki mik­ill vind­ur. Einka­flug­vél hafði flogið yfir brot­lend­ing­arstaðinn skömmu áður en ekki fundið flakið. „Flök flug­véla sem far­ist hafa sjást mjög illa og hverfa í lands­lagið, sér­stak­lega þarna, þar sem mikið er um snjó og skafla,“ seg­ir Auðunn. Skömmu síðar sást flakið úr þyrlu Gæsl­unn­ar. Hann seg­ir að vél­in hafi sést mjög illa. Alla jafna fljúga þyrl­ur Gæsl­unn­ar í 200-300 feta hæð, eða því sem nem­ur um 60-90 metra hæð, þegar leit stend­ur yfir. „Þyrl­an frá Gæsl­unni fann hana og einn gæslumaður og lækn­ir sigu niður að flak­inu.“

Hinn látni var kanadísk­ur og var strax úr­sk­urðaður lát­inn eft­ir að lækn­ir kom á slysstað. Hann hét Arthur Grant Wagstaff, fæddur árið 1959. Flogið var með Arn­grím til Ak­ur­eyr­ar þaðan sem hann fór með sjúkra­flugi til Reykja­vík­ur. Að sögn Auðuns virt­ist Arn­grím­ur nokkuð vel hald­inn þrátt fyr­ir bruna­sár. „Hann var í þokka­legu ásig­komu­lagi. Við kom­um að hon­um á fót­um fyr­ir fram­an vél­ina. Hann gat gert ágæt­lega grein fyr­ir sér,“ seg­ir Auðunn. Að sögn hans tóku tvær þyrl­ur þátt í leit­inni auk 150-200 björg­un­ar­sveita­manna sem búið var að ræsa út á Norður- og Vest­ur­landi. „Við sett­um ansi víðfeðma leit í gang. Bæði á sjó í flug­leiðinni þar og á Vest­ur­landi,“ seg­ir Auðunn í samtali við Morgunblaðið í dag.

Báðir menn­irn­ir voru flug­menn en ekki ligg­ur fyr­ir hvor þeirra stýrði vél­inni.