Fékk 3,7 á „almennunni“ en kennir fagið í dag

Elva Ágústsdóttir sálfræðingur deilir sérstakri sögu með fylgjendum sínum á Twitter í dag. Af orðum hennar má lesa að í upphafi háskóla námsins hafi henni gengið illa, en í dag er hún með mastersgráðu og vinnur við að kenna fagið.

Elva Ágústsdóttir segir frá því á Twitter, að hún hafi fengið 3,7 á „almennunni“ í sálfræði, sem er einskonar inngangs-kúrs í faginu við Háskóla Íslands.

Hún lét það þó ekki stöðva sig og er í dag með bæði BS gráðu og MS gráðu í sálfræði, vinnur við fagið og kennir það „við fínasta orðstír,“ segir hún.

Elva hefur tístið á orðunum „elsku þið sem eruð að fá einkunnir.“ Hún segir að ekki sé nauðsynlegt að vera alltaf besta útgáfan af sjálfum sér, en óhætt er að ætla að orðin geti veitt mörgum innblástur, núna þegar einkunnir úr jólaprófum lenda í rafrænum póstkössum nemenda á efri skólastigum.

Skilaboð Elvu eru þannig á þá leið að úthaldið borgi sig og ekki þurfi að gefast upp þó að gangi illa í fyrstu tilraun.