Um 18% íslenskra ungmenna á aldrinum 15 ára eru við yfirþyngd eða offitu. Þetta kemur fram í tölum frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD).
Ísland er næstefst meðal Evrópuþjóða. Einungis Grikkland er ofar. Efst eru Bandaríkin og Kanada fylgir fast á hæla Bandaríkjanna. Umfjöllun er um málið í Morgunblaðinu í dag.
Yfirþyngd og offita eru sívaxandi heilbrigðisvandamál á Vesturlöndum. Má tala um offitufaraldur. Fólkn er offeitt þegar líkamsmassastuðull (BMI) er kominn yfir 30. Þessi stuðull er mælikvarði á þyngd miðað við hæð. Aðrir þætti eru mittismál og sjúkdómar og kvillar sem orsakast af offitu.
Þjóðin er að fitna. Offita er nú grafalvarlegt vandamál. Offitu fylgja kvillar og vanlíðan. Fólk borðar meira en það brennir. En það er hægt að léttast og snúa þróuninni við. Það eru þó engar skyndulausnir líklegar til hjálpa þeim sem eru í yfirþyngd eða þjást af offitu. Eina leiðin til léttara og betra lífs er lífstílsbreyting.
rtá