Skúrinn á Hringbraut í kvöld en ökutækjasjónvarpsþáttur Jóa Bachmann ber einmitt það nafn og hefur notið vinsælda meðal bílaáhugamanna.
\"Við höfum verið að fylgjast með Benz Sprinter sem var keyptur nýr hjá Öskju og honum breytt í ferðabíl fyrir fjalla- og jöklaferðir. Þessar breytingar hafa farið fram hjá jeppaþjónustunni Breytir. En nú fær eigandinn Ingólfur Stefánsson, Ingó, bílinn afhentan eftir glæsilegar breytingar. Sprinterinn er komin á 46\" dekk og fullbúinn til fjallaferða og ekki neitt að vanbúnaði að skella sér í jómfrúarferðina og fyrir valinu var þúsundvatnaleið. Frábær ferð í góðum félagsskap með Ingó, en hann á og rekur Safaris.is sem er ferðaskrifstofa fyrir erlenda sem og innlenda ferðamenn,\" segir Jói um þáttinn í kvöld.
Þá verður fjallað um að 1. maí ár hvert er hópkeyrsla mótorhjólamanna og kvenna. Þessi samstaða hjólafólks hefur verið árlegur viðburður í næstum 30 ár og er liður í því að láta vita af því að hjólin eru komin í umferðina. Hjólin eru líka ákveðinn vorboði.
\"Í þetta sinn komu yfir 700 mótorhjól og knapar saman á horninu á Bankastræti og Laugarvegi og náði röðin í ár alla leið upp á Hlemm. Það var feiknarlega tignarlegt að fylgjast með keyrslunni frá Laugarvegi, um Vesturbæinn og að Kirkjusandi, þar sem allir komu saman og fengu sér kaffi og sýdu sig og sáu aðra,\" segir Jói um annað efni þáttarins. \"En þetta er fyrst og fremst samstaða mótorhjólafólks og áminning til ökumanna að horfa tvisvar áður en ekið er af stað.\"
Skúrinn er á dagskrá kl.20.00.