Það er kunnuglegur svipur með viðmælendum Sólveigar Ólafsdóttur í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi í kvöld, en þar mæta meðal annarra Bogi Ágústson fréttamaður og dóttir hans Þórunn Elísabet Bogadóttir til að greina bresku kosningabaráttuna.
Bogi er vitaskuld einn virtastasti fréttamaður landsins, hokinn af áratugareynslu í að skýra og greina erlenda atburði. Þórunn Elísabet er eplið nærri eikinni því hún starfar nú sem aðstoðarritstjóri á vefmiðlinum Kjarnanum sem getur hefur sér gott orð fyrir vandaðar fréttaskýringar.
Þau feðginin þekkja afar vel til breskra stjórnmála, en Þórunn lærði stjórnmálafræði við Edinborgarháskóla og Bogi hefur fjallað um fleiri kosningar í Bretlandi en tölu verður komið á. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem þau feðginin koma saman í sjónvarpsþætti.
Auk þeirra feðgina mæta Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur og Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður í þáttinn sömu erindagjarða, en spennan í bresku kosningabaráttunni hefur sjaldan eða aldrei verið meiri, enda virðist tveggja flokka kerfið endanlega vera að ganga sér til húðar á eyjunum. Kosið verður á morgun.