Febrúar byltingin

Á kvennadaginn hinn 23. febrúar 1917 gerðu konur í Sánkti Pétursborg verkfall. Þannig hófst  rússneska byltingin - febrúar byltingin- bylting hægfara manna.

Þeir ruddu valdaráni bolsévíka braut hinn 25. október 1917.  Vladimir Ilitsj Lenín var þeirra oddviti. Lenín var orðinn langþreyttur á því hversu hægt miðaði með aðferðum hægfara rússneskra byltingarsinna.

\"Að hika er glæpur!\" hrópaði Lenín.

Þetta 100 ára afmæli vekur ekki hina minnstu eftirtekt hér á landi. Enda ekki nema von.

Á fundi fyrr í dag var rætt um þessa löngu liðnu atburði. Einkum var rætt um það hvers vegna hugmyndafræði bolsévíka náði aldrei neinni fótfestu hér á landi.

Töldu menn að það vera sökum þess að íslenskir stjórnmálamenn mörkuðu pólitík sína ekki eftir erlendum uppskriftum heldur frekar reynslu sinni og íslenskum aðstæðum.

Var Ólafur Thors nefndur sem dæmi um slíkan stjórnmálamann.

Þeir sem vilja ná völdum og hafa áhrif á Íslandi kunni einfaldlega þá kúnst að slá af ítrustu stefnu til á tryggja sér völd og áhrif.

Var rifjað upp það sem Ólafur sagði við Birgi Kjarna. Ólafur sagði við Birgi að hann teldi sig ekki bundinn af neinni stefnuskrá sem einhver kosningaskrifstofa útbýr.  

Birgir skrifaði seinna að skoðanir Ólafs hafi verið grunnmúraðar í fáeinum einföldum atriðum.

Einn fundarmannna rifjaði upp að Karl Marx var enn á námsárum sínum árið 1835 þegar nafnkunnur franskur sagnfræðingur Alexis de Tocqueville vakti athygli heimsins á því að tvær nýjar stórþjóðir væru að rísa.

Önnur þessara þjóða var vígð frelsinu. Hin grundvallaðist á áþján.

Landvinninga Ameríkana eru fengnir með plógnum. Landvinningar Rússa eru með sverðinu.

Þessi fundarmaður sagði að þetta væri mergur málsins.

Íslendingar myndu hér eftir sem hingað til umgangast Rússa af varkárni og nokkurri tortryggni.

Enda munu núverandi Kremlverjar í engu vera ólíkir fyrri Kremlverjum.

Allt hefur gerst í Rússlandi - og hvaðeina getur gerst aftur bætti hann við.