Máni Pétursson, dagskrárgerðarmaður í útvarpsþættinum Harmageddon, gagnrýnir harðlega hvernig stjónvöld hér á landi hlaði undir þjóðkirkjuna á kostnað heilbrigðisþjónustu. Þetta kom fram í umræðuþættinum Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld þar sem Máni og Frosti Logason voru gestir þáttarins en efnistök og umræða útvarpsmannanna nýtur vaxandi athygli. Máni sagði sig úr þjóðkirkjunni fyrir skömmu vegna óánægju.
\"Það er eiginlega alveg stórkostlegt að horfa upp á það að fólk með börn þarf að bíða í 18 mánuði eftir að koma börnunum í greiningu fyrir athyglisbrest, ofvirkni eða annað á sama tíma og forsætisráðherra finnst borga sig að láta pening í sunnudagsskólann. Þetta er algjör sturlun,\" sagði Máni í Kvikunni á Hringbraut en þátturinn verður endursýndur í dag.
Líkingamálið sem Máni notaði í kjölfarið var að Framsóknarflokkurinn væri að ala upp \"ofbeldismenn og handrukkara\".
Ráðandi öfl innan annarra flokka fengu einnig að finna til tevatnsins í greiningu þeirra Frosta og Mána á ráðstöfun fjármuna og pólitískum áherslum í samtímanum. Frosti benti á að nýútskrifaðir læknar á Landsanum væru með lægri laun en prestar. Voru þeir Harmageddon-bræður þó á einu máli um að lítið gagn væri að menntun presta.