Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði í dag húsleit á skrifstofu Michaels Cohen, persónulegs lögmanns Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
FBI vann út frá húsleitarheimild sem fékkst í framhaldi af tilmælum frá sérstökum saksóknara í málefnum Trumps, að því er segir í frétt The New York Times um málið í dag.
The Wall Street Journal skýrði auk þess frá því að lögregluyfirvöld hefðu líka leitað á heimili Cohens og á hótelherbergi á Manhattan. Samkvæmt fréttum blaðanna munu fulltrúar FBI hafa lagt hald á gögn sem tengjast 130 þúsund dala greiðslu Cohens til fyrrum klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels skömmu fyrir forsetakosningarnar í nóvember 2016 og ætluð var til þess að tryggja þagmælsku hennar um samband þeirra Trumps.
Auk þess var lagt hald á gögn sem tengdust öðrum málum.
Lögmaður gagnrýndi aðgerðir FBI og sagði þær of harkalegar, óviðeigandi og ónauðsynlegar. Cohen hefði þegar verið algerlega samvinnuþýður í rannsókninni.