Hollensk og íslensk fyrirtæki eiga eignarhluti í sjávarútvegsfyrirtækjum í Færeyjum.
Árni Dahl skrifar um þetta í færeyska blaðið Norðlýsið. Árni segir að útlendir menn raki saman fé úr auðlind sem sé þjóðareign Færeyinga.
Áformað er að sögn færeyska útvarpsins að setja lög sem banna útlendingum að eiga eignarhluti í færeyskum útgerðum.
Lögþing Færeyja hefur til umsaganar drög að frumvarp nýrra laga um færeyskan sjávarútveg.
Þar er að finna ákvæði um að einungis skattborgarar sem búsettir eru í Færeyjum og skattskyld fyrirtæki skráð í Færeyjum megi nýta færeyskar veiðiheimildir.
rtá
Nánar www.kvf.fo www.nordlysid.fo