Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir að engar skýringar hafi fengist á verulegum verðmun á lönduðum fiski og útflutningsverði þess sama fisks. Hér er um umtalsverða peninga að ræða, til dæmis vantar skýringar á meira en nítján milljörðum árið 2014.
Valmundur segir sjómenn hafa fá ráð til að afla sér upplýsinga um hvers vegna fiskur sem landað er hér reynist svo mikið verðmeiri þegar hann er fluttur úr landi. Það skerður hlut sjómanna.
Valmundur kann heldur ekki nægar skýringar á hvers vegna útgerðir í Færeyjum, og þar á meðal dótturfélag Samherja, borga mun hærra verð fyrir makrílkvóta í Færeyjum, en borgað er fyrir makríl úr veiðiskipi á Íslandi.
Valmundur er gestur í Þjóðbraut sem verður á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:00 í kvöld.