Áfram er stefnt að hraðri niðurgreiðslu skulda. Enda er skuldsetning dýr miðað við vaxtastig hér á landi.
Vaxtagjöld eru enn stór útgjaldaliður ríkissjóðs Íslands. Vaxtagjöld verða um sjötíu og þrír milljarðar króna árið 2018.
Fátt kom á óvart í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018. Frumvarpið er í samræmi við markmið fjármálaáætlunar fyrir árin 2018 - 2022 sem Alþingi samþykkti í júní.
Meirihluti fjárlagnefndar sagði í raun pass við fjármálaáætluninni. Lagði til ýmsar vangaveltur. Og Alþingi samþykkti tillögu ríkisstjórnarinnar óbreytta.
Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans fjallar nánar um málið www.landbankinn.is