Fatlaðir í kuldanum – nægt fé í lúxusbíla

Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, skaut þungum skotum að forsætisráðherra þjóðarinnar undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í dag. Hann reifaði að þrátt fyrir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefði sagst koma af fjöllum í umræðu á þingi í gær um lúxusbílakaup ráðherra, hefðu fjölmiðlar greint frá því að forsætisráðherra væri að fá rándýran ráðherrabíl. Hann kostaði 22 milljónir króna en ráðuneytið fengi hann á 13 milljónir.

Full ástæða væri til að gleðjast yfir þessum „reyfarakaupum“ en hinu segðu fjölmiðlar nú einnig frá að utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og sjávarútvegsráðherra hefðu nýverið einnig fengið nýja bíla. Heildarkostnaður væri um 35 milljónir króna vegna lúxusbílakaupa. Á sama tíma skorti fé til Hjálpartækjamiðstöðvar Íslands. Vegna fjárskorts vantaði fatlaða nauðsynleg hjálpartæki til að taka þátt í lífinu.

Það væri lán að ekki skorti fé inn í „Hjálpartækjamiðstöð stjórnarráðsins\" eins og þingmaðurinn Páll Valur Björnsson orðaði það, en skyggði á gleðina að á sama tíma bíði  fatlaðir mánuðum saman eftir nauðsynlegum hjálpartækjum til að lifa lífi sínu.