Fasteignaviðskipti úr 27 í 2 milljarða

Verkfall lögfræðinga hjá sýslumannsembættum hefur gert það að verkum að kaupsamningum hefur ekki verið þinglýst í margar vikur. Engum kaupsamningi var þinglýst frá 6. apríl til 30. apríl, og því eru nýjustu tölur um gang mála á fasteignamarkaðnum nær algjörlega ómarktækar.


Þetta kemur fram í Kjarnanum í dag en þar segir að velta á fasteiugnamarkaði í mars hafi verið 27,6 milljarðar króna, en í apríl hafi hún verið komin niður í 2,5 milljarða króna. Þetta segi sína sögu um umfangið og breytingarnar.


Kjarninn segir: "Það er mikið umhugsunarefni hversu langan tíma það ætlar að taka fyrir stjórnvöld að ná samningum um kaup og kjör við sérfræðinga, eins og lögfræðinga og fleiri stéttir. Það eitt að svo mikið hökt sé komið í fasteignaviðskipti hefur áhrif á fjölmargt í hagkerfinu, sem ekki tengist þinglýsingarvinnunni beint."