Fasteignaskattar hækka mest í firðinum

Útsvarsprósentan er óbreytt frá árinu 2015 hjá 14 sveitafélögum af 15 en Reykjanesbær er með 3,62% álag á útsvarið. Aðeins Vestmannaeyjabær hækkar útsvarið á milli ára.  

Þetta kemur fram í úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands sem hefur að auki skoðað breytingar á fasteignagjöldum milli ára. Þar kemur í ljós að álagningarprósenta er óbreytt hjá 10 sveitarfélögum af 15. Tvö þeirra eru að hækka fasteignaskattinn en þrjú lækka. Hækkunin í Hafnarfirði er 21,4% og Fjarðarbyggð 4,2%. Þau sveitarfélög sem lækkuðu álagninguna á milli ára eru Vestmannaeyjar um 16,7%, Garðabær um 2,1% og Kópavogur um 1,9%.  

Hvað útsvarið varðar er athygli vakin á því að hjá Reykjanesbæ er álagið aukið vegna slæmrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Aðeins Kópavogur, Garðabær, Seltjarnarnes og Vestmannaeyjabær innheimta útsvar undir hámarkinu sem er 14,52%. Lægsta útsvarið er 13,7% hjá Garðabæ og Seltjarnarneskaupstað. 

Þegar tillit hefur verið tekið til breytinga á fasteignamati, hækkar fasteignaskattur í flestum sveitarfélögum, þrátt fyrir að nokkur þeirra lækki álagningarprósentuna. Mesta hækkunin er hjá Hafnarfirði í fjölbýli um 34,5% og í sérbýli um 29,8%, einnig er mikil hækkun í Reykjavík – miðbær í fjölbýli um 14,9% og í sérbýli um 20,1%. En í Vestmannaeyjum lækkar fasteignaskatturinn um í fjölbýli um 15,4% og í sérbýli um 11,5% vegna lækkunar á álagningarprósentu. Einnig er lækkun hjá Ísafjarðabæ – eldri byggð í fjölbýli um 2,7% vegna lækkunar á fasteignamati.