Fasteignamarkaðurinn rótin að kjaradeilu

„Fyrir mér hefur það verið aug­ljóst í langan tíma að þegar við horfum inn í þetta kjara­samn­ings­um­hverfi, þá sé rótin að þessu, hún liggi fyrst og fremst á fasteigna­mark­að­i. Hún liggi þar að það séu of stórir hópar einstaklinga og fjölskyldna sem hafa lent utangarðs á fasteignamarkaði. Ekki all­ir, mik­ill minni­hluti, vegna þess að þeir sem hafa átt fast­eign á þessu tíma­bili hafa séð alveg gríð­ar­lega aukn­ingu á sinni eigna­stöðu yfir þetta tíma­bil. En þeir sem hafa verið á leigu­mark­aði í ótryggu hús­næði hafa þurft að glíma við erf­iðar afleið­ingar hækk­andi hús­næð­is­verðs og þar af leið­andi leigu­verðs.“

Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og telur að vandi þessara hópa verði ekki leystur með hækkun launa. Halldór Benjamín er gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld.

Í viðtalinu ræðir Halldór Benjamín meðal ann­ars stöðu mála í kjara­viðræðum, yfir­vof­andi verk­föll, útspil rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir lausn í við­ræðum vinnu­mark­að­ar­ins og launa­hækk­anir rík­is­for­stjóra. Kjarninn greinir frá.

Hall­dór seg­ist hafa haldið því fram allt frá því að yfir­stand­andi kjaradeila hóf­st, og í raun mörgum mán­uðum áður, að lausnin á deil­unni myndi liggja í gegnum rót hans, fast­eigna­mark­að­inn. „Við sjáum það í hendi okkar að það sem á sér stað inni í Karp­húsi og á samn­inga­fundum Sam­taka atvinnu­lífs­ins við öll þessi verka­lýðs­fé­lög er fyrst og fremst karp um kaup og kjör. En við leysum ekki fram­boðs­skort á fast­eigna­mark­aði, sem er sann­ar­lega und­ir­liggj­andi rót vand­ans, með því að hækka laun. Við leysum þann fram­boðs­skort með því að byggja meira, með því að byggja hag­kvæmar og auka fram­boð af hús­næði á viðráðanlegu verði. Allar lausnir sem líta framhjá þess­ari stað­reynd eru dæmdar til að mis­takast.“

Hall­dór segir að staðan á Íslandi sé góð en að á sama tíma virð­ist hún vera slæm. „Það er mikið róstur framundan á vinnu­mark­aði sem á sér ein­hverjar aðrar und­ir­liggj­andi aðstæð­ur. Eigna­staða við útlönd er jákvæð í fyrsta skipti í langan tíma. Við eigum meiri eignir í útlöndum heldur en skuld­ir. En á sama tíma sjáum við þegar við horfum inn í heim­ili lands­ins, þá virð­ist vera að það sé hluti þar sem standi utan­garðs.“

Nánar er rætt við Halldór Benjamín í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.

Brot úr þættinum má sjá hér: