Fólk vill að fermetrarnir nýtist

Fasteignamarkaðurinn virðist vera að leita jafnvægis, að mati Ingólfs Geirs Gissurarsonar, fasteignasala á Valhöll til nærfellt 30 ára, en hann metur það svo að húsnæðisverð muni ekki hækka jafn ört og mikið á næstu mánuðum og það hefur gert síðustu ár, sem aftur leiði til þess að fleiri setji eignir sínar í sölu.

Þetta kemur fram í fasteigna-, húsnæðis- og skipulagsþættinum Afsali á Hringbraut sem frumsýndur var í gærkvöld, en staðan, að mati Ingólfs, er akkúrat þessi; stór hópur íbúðaeigenda hafi beðið með að setja eignir sínar á sölu á meðan fasteignaverðið hafi hækkað samfellt svo misserum skipti, en núna þegar útlit sé fyrir að ákveðnum hátindi hækkunarinnar sé náð flýti margir sér að setja eignir sínar í sölu. Framboðsaukningin muni svo aftur leiða til þess að halda aftur af enn frekari hækkunum.

Það sé þó fráleitt hægt að sjá einhverjar verðlækkanir á íbúðamarkaði í kortunum, þvert á móti muni íbúðaverð áfram halda að hækka, svo sem það hafi gert öll þau 28 ár sem Ingólfur hefur verið viðloðandi fasteignabransann, fyrir utan eitt ár eftir hrun, en stórhækkanatímabilið sé væntanlega að baki; verðið hafi náð ákveðnum þolmörkum og muni fylgja betur öðrum kennitölum hagkerfiins en verið hefur.

Í þættinum, sem nú má sjá hér á vef stöðvarinnar, er einnig áhugavert viðtal við arkitektana Borghildi Sturludóttur og Helga Steinar Helgason um þær breytingar sem eru að verða á hugarfari fólks til séreigna og leigjendamarkaðar og hvaða breytingar séu í farvatninu hvað íbúðahverfi og þéttingu byggðar varðar. Þau segja að almennt sækist fólk eftir heldur minna húsnæði en áður og þó öðru fremur vel hönnuðum íbúðum þar sem hver fermetri nýtist eins vel og kostur er. Einnig sé áberandi að fólk sé reiðubúnara að búa í meira návígi hvert við annað en áður var; stórar fjölbýlishúsamstæður þar sem verið er að þétta byggð og þjónustu trekki nú æ meira að, en þar sé mikilvægt að skapa fjölbreytta búsetukosti; fyrir sveitarfélögin sé afskaplega brýnt að hafa margskonar húsakost í hverju hverfi svo fólk geti flutt sig þar á milli mismunandi íbúða í stað einsleitra íbúðategunda sem geri það að verkum að heilu og hálfu hverfin fari í gegnum upp- og niðursveiflu með reglulegu millibili.

Afsal er frumsýnt öll miðvikudagskvöld klukkan 21:30..