Fárviðrið í beinni útsendingu

„Þetta eru auðvitað skelfilega háar tölur - hæsta gildið er meira en 48 m/s (10-mínútna meðalvindur).“

Þannnig skrifar veðurfræðingurinn Trausti Jónsson í pistli á hungurdiskum.

Margt forvitnilegt kemur fram í pistli Trausta sem vitaskuld hverfist um illviðrið sem senn skellur á suðurströnd Íslands.

„En fleira er það en vindurinn sem gerir þetta veður leiðinlegt - blotar ofan í mikinn snjó eru aldrei skemmtilegir - munið t.d. að tryggingar ná illa til vatnstjóns að utan. Svo er annar vindstrengur tilheyrandi lægðarmiðjunni - í kringum hana sjálfa er snarpur vindur - af suðaustri, suðri og suðvestri. Suðvestanáttin gæti orðið stríð og æst upp sjó undir morgun á þriðjudag - séu spár réttar.“

 Sjá má fárviðrið í beinni útsendingu hér og hvernig það nálgast landið.