Fárviðrið: 70 metrar á sekúndu

Mjög hvasst er við suður- og austurströnd landsins í einhverjum versta stormi sem skellur á landinu. Mesti vindur sem mælst hefur í nótt náði rúmum 70 metrum í vindhviðu á Vatnsskarði eystra. Mikil hætta fylgir slíku ofsaveðri. Þá fór vindur í 58 metra á sekúndu undir Eyjafjöllum í vindhviðu. Hefur vindur án þess að um hviður sé að ræða nálgast 50 metra á einstaka svæðum.

Á Höfn í Hornafirði hafa skapast vandræði eftir að bátar tóku að losna í óveðrinu. Björgunarfólk vann að því í nótt að reyna að festa báta að því er Rúv greinir frá.

Í gærkvöld lokaði Vegagerðin vegum á austan- og norðaustanverðu landinu, vegfarendum til öryggis. Lokun er frá Freysnesi að Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi, frá Höfn að Fáskrúðsfirði, Oddskarð, Fagridalur, Fjarðarheiði, Vatnsskarð eystra, Vopnafjarðarheiði, Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Ólafsfjarðarmúli.

Þá er óvissustig vegna skriðu- og krapaflóðahættu á Austurlandi. Samkvæmt Rúv eru engin skip á sjó fyrir austan land, þein var siglt til hafnar í skjól áður en veðrið brast á.

Hringbraut hefur verið í sambandi við íbúa austanlands í nótt sem segja að fólk haldi stillingu sinni og voni það besta. Ekki er hægt að útiloka í fárviðri að kyrrstæðir bílar fjúki eða húsþök.

Á þessari mynd má sjá að Ísland er nú um kl. sex að morgni á kafi í hinni kröppu lægð. Rauður litur sunnanlands og austan.