Svo virðist sem farsæll endir sé komin í mál blaðamannanna Jakobs Bjarnars Grétarssonar og Ágústs Borgþórs Sverrissonar. Sá fyrrnefndi sagðist í dag hafa beðið rithöfundinn Braga Pál Sigurðarson um að drepa Ágúst í næstu skáldsögu sinni, en ummælin voru þó augljóslega sett fram í gríni.
Þess má geta að síðasta skáldsaga Braga, Arnaldur Indriðason deyr fjallar um morð á einum ástsælasta glæpasagnahöfundi landsins, líkt og titillinn gefur til kynna.
Jakob hvatti Braga til þessa vegna þess að Ágúst hafði „sópað upp einhverjum Facebook status“ og gert úr frétt. Ágúst hefur þó leiðrétt þann misskilning á Facebook-síðu sinni, en segir að „eflaust hefði Jakob gert þetta miklu fínna“.
Í kjölfarið baðst Jakob afsökunar á sinni Facebook-síðu, og kenndi „feðraveldinu“ eða þeim Frosta Logasyni og áðurnefndum Braga, um að hafa stillt sér upp. „Þeir Frosti og Bragi, stilltu mér upp hvor með sínum hætti og plötuðu mig út í þetta.“ skrifaði Jakob. Ágúst svaraði og sagði að hann myndi jafna sig á þessu öllu saman.
Báðir deildu þeir frétt Hringbrautar um málið.Jakob benti á að myndin af Ágústi sem notuð var við fréttina hefði upprunalega verið tekin vegna viðtals hans við Ágúst. „Annars er fallegt innrím í þessu. Ég fæ ekki betur séð en myndin af þér sé úr photosessioni sem ég lagði upp; þegar ég tók við þig höfundatal, sem var með þeim betri.“ Ágúst skrifaði skondið svar: „Já sællar minningar. Ég var yngri og aðeins fríðari en feitari.“