Dæmi eru um allt að 10% verðhækkun á algengum neysluvörum í vinsælum matvörubúðum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu dögum og má augljóst vera að þar gætir áhrifa nýgerðra kjarasamninga.
Að sögn forráðamanna stærstu matvörukeðjanna, Bónuss og Krónunnar hefur gætt mikils þrýstings frá birgjum í þá veru að hækka verð á neysluvörum um 2 til 10%, en Jón Björnsson forstjóri Kaupáss tekur undir þetta í samtali við Morgunblaðið í dag og segir athyglisvert hvað menn séu fljótir að hækka verð í kjölfar nefndra kjarasamninga.
Hann segir ljóst að matvöruverslunin geti ekki tekið á sig bæði hækkun launa og hækkun á kostnðaraverði og því hljóti matvöruvberð að þokast upp á við.
Samtök verslunar og þjónustu höfðu spáð hóflegum verðhækkunum í ljósi þeirra kjarasamninga sem hafa náðst að undanförnu, en miðað við þær hækkanir sem nú ganga yfir er óhætt að segja að orðið \"hóflegt\" eigi þar varla við.
Neytendasamtökin sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis í gær að þau myndu birta lista yfir þær verslanir sem hækka vöruverð hvað mest, en þau hvetja þar neytendur til að vera á verði.