Farið er að bera á kjötskorti í matvöruverslunum, einkum á kjúklingi og svínakjöti, vegna ótímabundins verkfalls dýralækna sem verða að vera viðstaddir slátrun dýranna samkvæmt heilbrigðisreglugerð. Ástandið mun versna til mikilla muna á næstu dögum.
Dýralæknar eru innan Bandalags háskólamanna sem verið hafa í verkfalli síðustu vikur, en vinnustöðvun þeirra hefur veruleg áhrif á matvælaframleiðslu af ofangreindum ástæðum. Dýralæknar hafa í vissum tilvikum veitt undanþágu frá verkfallinu í þágu dýravelferðar, en þær duga skammt eins og sést best á orðum verslunarstjóra stærstu matvöruverslana landsins sem segja að nú þegar sé komið í óefni.
Litlar sem engar líkur eru á að samningar BHM og ríkisins takist á næstu dögum, en fulltrúar háskólamanna segja að vart taki því að setjast við samningaborðið með viðsemjendum af því þeir hafi ekkert að bjóða.