Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var meðal gesta í laugardagsþætti Þjóðbrautar. Hann sagði þar að sér sýndist kosningar í vor vera einna líklegastar í þeirri stöðu sem nú er uppi.
„Ég sé fyrir mér að það verði mynduð minnihlutastjórn eða starfsstjórn fram að þeim tíma sem kosið verður. Sú stjórn vinni þá í brýnustu málum og svo verði kosið aftur. Mér finnst þetta alls ekki óraunhæft,“ sagði Ásmundur.
Hann sagði stjórnarmynarviðræðurnar hafa takið langan tíma og margt megi að þeim finna. „Útlilokun Framsóknarflokksins er nokkuð sem gengur ekki í þessu samhengi. Það er í raun fáránlegt að útiloka möguleika og sýnir að fólk er ekki að þessu af fullri ábyrgð.“
Ásmundur sagði Sjálfstæðisflokk hafa átt ágætt samstarf með Framsóknarflokki. „Mér finnst ekki rétt að útiloka þá frá þessu. Þar er prýðisgott fólk og ég hef átt gott samstarf við fólk í Framsóknarflokknum. Ég vildi sannanlega vilja vinna með þeim áfram. Það er einnig afbragðsgott fólk í öðrum flokkum. Fólk sem ég er reiðubúinn að taka upp samstarf við.“
Talið barst að starfsstjórninni og hvort það fyrirkomulagi gangi lengi.
„Það er einsog það sé enginn í brúnni. Það er ekki tekið á neinum málum. Það er bara haldið upp í. Það er fordæmalaust ástand í þinginu núna. Það er verið að hnoða saman fjárlögunum og ég verð að segja, okkur þingmönnunum til hrós, að mér finnst vera meira umburðarlyndi í þinginu núna en nokkur tíma áður í þann tíma sem ég verið þar.“
Hann sagðist halda að allir þingmenn vilji gera sitt besta í þeirri stöðu sem nú er. „Þrátt fyrir að ekki hafa tekist að hnoða saman ríkisstjórn. Mér finnst það, sem forseti Íslands, sagði við þingsetninguna og hann hefur sagt það áður, að þingmenn verða að horfa til eigin ábyrgðar, láta þingstöfin ganga vel og verja ekki löngum tímum í það sem minna máli skiptir.“
-sme