Fantur sem þusar tóma þvælu

Andstæðingar Vigdísar Hauksdóttur þingmanns vanda henni ekki kveðjurnar eftir að Vigdís sakaði forstjóra Landspítalans um að beita meðlimi fjárlaganefndar andlegu ofbeldi.

Stundin birti í gærkvöld nokkuð sláandi frásögn fyrrum varaþingmanns VG sem ber Vigdísi ekki vel söguna. Davíð Stefánsson kallar hanna félagslegan fant og lýsir hvernig hún hafi beitt aðra ofbeldi og einelti á fundum ítrekað. Vigdís sé gerandi í einelti ekki fórnarlamb.

Nokkrir fyrrverandi þingmenn s.s. Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari hafa deilt greininni. Segir Þór Saari á facebook: „Ég er sammála þessu, hún var óalandi og óferjandi á flest öllum fundum, illa inn í málum og þusaði tóma þvælu út í eitt.“

Margrét tekur ekki minna upp í sig:

„Þessi kona er ekki bara fáviti heldur líka stórhættuleg,“ segir Margrét Tryggvadóttir.