Fannst látinn í íshellinum

Íslenskur karlmaður á sjötugsaldri sem leitað var að í íshelli í Blágnípujökli í suðvestanverðum Hofsjökli fannst á tólfta tímanum í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.
 
Samferðafólk mannsins var flutt í skála í Kerlingafjöllum og verður flutt áfram þaðan til byggða. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á tildrögum slyssins.

Að sögn lögreglunnar var veður slæmt á svæðinu lengst af leitar, en það hamlaði flugi um svæðið allt þar til seint í nótt. Þá gátu flugmenn Landhelgisgæslunnar flogið af vettvangi. Þá tekur nokkurn tíma fyrir aðra sem af verkefninu komu að komast til byggða. 

Hátt í 200 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni ásamt lögreglu og er þetta ein viðamesta björgunaraðgerð á landinu það sem af er ári.