Fannst kominn tími til að segja frá sinni upplifun af bankahruninu

Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis banka, fannst vera kominn tími á að segja frá sinni upplifun af aðgraganda og eftirmálum bankahrunsins nú fjórtán árum síðar. Hann hefur ekki veitt viðtöl eða tjáð sig um atburðina en segir nú sögu sína.

Fréttablaðið greinir frá.

Lárus var aðeins þrítugur er hann var ráðinn forstjóri Glitnis vorið 2007 og gegndi stöðunni í sautján mánuði fram að bankahruni. Þá tók við löng barátta fyrir dómstólum þar sem Lárus var meðal annars með réttarstöðu sakbornings í rúman áratug.

Bókin Lárusar, Uppgjör Bankamanns, kom út í vikunni og segir hann í samtali við Fréttablaðið að tilurð bókarinnar sé frekar einföld. Honum hafi fundist kominn tími á að segja frá sinni upplifun eftir að hafa haldið sig frá öllum viðtölum og umræðu í öll þessi ár.

Þá sé að vissu leyti hollt að gera upp hluti sem hafa mikil og djúpstæð áhrif og þessir sautján mánuðir sem hann hafi verið hjá Glitni muni líklega aldrei fara frá honum.

Lárus segist sammála því að margt hefði mátt gera betur í tengslum við bankahrunið. „Við vorum ekki nógu varkár og fórum of geyst. En ég held samt að sú skýring sé ekki alls kostar rétt að í íslensku bankakerfi hafi slæmt fólk verið að verki.“

Til að skilja atburðina sjálfur sótti Lárus sér frekari menntun. „Til að reyna að skilja hvernig í ósköpunum þetta gerðist. Til að átta mig á þessu sjálfur.“

Viðtalið við Lárus í heild sinni má lesa hér.