Vetrarkuldinn sem hrjáð heftur nágranna okkar í Evrópu undanfarna daga og suður yfir Miðjarðarhaf heldur enn velli í Skandinavíu og á Bretlandseyjum. Í Osló var 10 stiga frost í dag og á Bretlandseyjum er spáð mikilli snjókomu. Samkvæmt fréttum BBC er jafnvel gert ráð fyrir allt að 50 sentimetra snjódýpt sums staðar á Englandi. Loka þurfti nokkrum flugvöllum vítt og breitt um álfuna í dag, t.d. í Dublin og Genf.
Vetrarveðrin, þau mannskæðustu í langan tíma, hafa gengið undir ýmsum nöfnum, mismunandi eftir löndum. Bretar tala um Skepnuna úr austri (Beast from the East) sem stormurinn Emma sigldi síðan í kjölfarið á. Hollendingar kalla þetta Síberíubjörninn og Í Svíþjóð hét þetta Snæfallbyssan.