Fanney fær lyfin sín í janúar

Fanney Björk Ásmundsdóttir, lifrarbólgusmitaður leikskólakennari frá Eyjum og margra barna móðir, segir að lyfjagjöf hjá henni muni að líkindum hefjast í janúar.

„Ég vona að það verði,“ segir Fanney í samtali við Hringbraut.

Lífsgæði hennar hafa farið mjög þverrandi, hún er með mjög laskað ónæmiskerfi, alltaf með hita, ónýtar tennur en hefur alltaf neitað að gefast upp. Líkami hennar hafnaði fyrri lyfjum vegna ónæmis og komst hún í lífshættu.

Barátta Fanneyjar vakti landsathygli en hún steig fram í sumar og sagði sögu sína. Hún smitaðist fyrir áratugum af lifrrarbólgu C þegar hún fékk óskimað blóð á spítala hér á landi eftir barnsburð. Hún hefur æ síðan glímt við sjúkdóminn.

Vegna framfara í lyfjavísindum hafa komið fram lyf sem geta  nú með 95% vissu læknað Fanneyju og aðra lifrarbólgusjúklinga. Allt varð vitlaust í samfélaginu eftir að dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem dómstólinn hafnaði að ríkinu bæri að greiða lyfin fyrir Fanneyju. Kostnaður við lífgjöfina var þá metinn á um 10 milljónir króna. Það getur dregið hana til dauða að fá ekki lyfin.

Fjallað var m.a. um mál Fanneyjar í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut. Nokkrum dögum síðar tilkynnti heilbrigðisráðherra nýtt samkomulag þar sem boðað hefur verið að allir lifrarbólgusjúklingar hér á landi fái lyfin að kostnaðarlausu.

Og sem fyrr segir styttist í að lyfjameðferðin hefjist en hún mun taka skamman tíma og miklar vonir standa til að Fanney og aðrir smitaðir lifrarbólgusjúklingar hér á landi geti hlotið fullan bata.