Fanney Eiríksdóttir lést í nótt á líknardeild Landspítalans, eftir um árs baráttu við leghálskrabbamein. Hún lætur eftir sig eiginmann, Ragnar Snæ Njálsson, og tvö börn en hann tilkynnti þetta í dag en barátta þeirra hjóna við leghálskrabbamein hefur vakið mikla athygli.
Daginn eftir að Fanney Eiríksdóttir fékk að vita að hún og maður hennar, Ragnar Snær, ættu von á dreng, var þeim tilkynnt að hún væri með krabbamein. Þau áttu eitt barn fyrir og aldrei kom til greina af þeirri hálfu að stoppa meðgönguna. Erik Fjólar kom í heiminn nokkrum mánuðum síðar, heilbrigður og myndarlegur drengur. Krabbameinið átti síðan eftir að dreifa sér en fjölskyldan neitaði að gefast upp
Í Ísland í dag lýsti Fanney hvernig var að fá þessar óhuggulegar fréttir:
„Ég held að við höfum bara pínulítið frosið. Hann biður um að fá að skoða mig aðeins betur og þá brotnaði ég pínu niður og byrjaði að gráta en síðan hristi ég það af mér.“
Þá kom í ljós að Fanney var með æxli á stærð við handbolta, en þetta var daginn áður en þau áttu að fá að vita kyn barnsins en Fanney var komin 20 vikur á leið. Þau ákváðu að bíða með alla meðferð og hefja lyfjameðferð þegar barnið kæmi í heiminn.
Fanney og Ragnar fengu síðan þær fréttir að meinvörp væru á nokkrum stöðum í lungum, bakvið hjartað, í beinum og víðar. Þegar krabbamein hefur dreift sér á þennan hátt er það skilgreint sem fjórða stigs krabbamein, síðasta stigið.
Ragnar Snær Njálsson skrifar á Facebook:
„Það er með ólýsanlegri sorg og mölbrotnu hjarta sem ég tilkynni ykkur að ástkær eiginkona mín, besti vinur minn og sálufélagi, hetjan okkar allra, móðir yndislegu barnanna okkar og elskuð dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir hefur yfirgefið þessa jarðvist
Ástarblómið lést á Líknardeild LSH í Kópavogi skömmu eftir miðnætti sl. nótt og var hún þar umvafin okkur fjölskyldunni og ástvinum
Fanney barðist fram á síðustu stundu og gafst aldrei upp, talaði m.a. um að fara á fætur og ganga nokkrar ferðir degi áður en hún kvaddi
Þrátt fyrir langt, strangt og ósanngjarnt ferli hafði hún ávallt jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi og sá þetta aldrei sem mögulega niðurstöðu. Meinið tók stakkaskiptum eftir að það komst í beinin, óx á ógnarhraða og áttum við undir lokin því miður við ofurefli að etja. Í dag eru einungis 4-5 dagar síðan við áttuðum okkur á þeirri staðreynd og svo er þetta strax búið. Fanneyju hrakaði hratt á síðustu dögunum og fékk svo hvíldina sína eftir alla baráttuna.
Nú ríkir mikill friður yfir henni og við huggum okkur við það að hvar sem hún vakir yfir, þá gerir hún það loksins án þjáninga þessa skelfilega sjúkdóms. Við hjónin náðum að fara vel yfir allt sem máli skiptir og fyrir það er ég ævinlega þakklátur. Stefnan er 100% skýr og mun minning hennar verða heiðruð í orðum og verkum um ókomna tíð. Fanney lifir áfram í gimsteinunum okkar, Emilý og Erik. Pabbi er alltaf hér ástirnar mínar og mamma vakir yfir okkur með verndarvæng sinn útbreiddan
Takk fyrir allt elsku hjarta. Óteljandi hamingjustundir og endalaus blessun. Ég elska þig að eilífu ástin mín. Mamma, við elskum þig út í geim og aftur heim.“
Jarðarförin mun fara fram mánudaginn 15. júlí.