Fanney björk fær loksins lyfin sín

Útrýma á lifrarbólgu C á Íslandi í krafti átaks sem stjórnvöld afréðu í gær að hrinda af stað, en fólki sem smitað er af lifrarbólgu C mun bjóðast meðferð með nýjum lyfjum sem geta læknað sjúkdóminn í allt að 95-100% tilvika.
 
Ítarlega hefur verið fjalla um vanda þessa fólks á Hringbraut undanfarna daga, jafnt á vef og sjónvarpi, meðal annars með opinskáu og eftirminnilegu viðtali við Fanneyju Björk Ásbjörnsdóttur, leikskólakennara úr Eyjum sem var hafnað nýlega fyrir dómi um að fá úrlaushn sinna mála, en hún smitaðist af lifrarbólgu C við blóðgjöf eftir barnsfæðingu á Sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum fyrir röskum tuttugu árum. Hún sagðist í viðtalinu líta á þann úrskurð sem sinn dauðadóm. 
 
Fréttir dagsins skipta því sköpum fyrir Fanneyju Björk og fólk sem glímir við sama heilsufarsvanda og hún.
 
Átak stjórmnvalda, sem kynnt var í dag er samstarfsverkefni heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead. Með því verður reynt að útrýma sjúkdómnum hér á landi og stemma stigu við frekari útbreiðslu hans. Þeim sem hafa greinst með veiruna verður boðin fræðsla, meðferð og eftirfylgni og þar með lágmörkuð hætta á nýjum tilvikum sjúkdómsins með smiti milli manna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Embætti landlæknis og Velferðarráðuneytinu. Jafnframt segir að á Íslandi séu kjöraðstæður til að ráðast í verkefni sem þetta, samfélagið sé lítið, þekking og reynsla heilbrigðisstarfsmanna sé fyrir hendi svo og nauðsynlegir innviðir heilbrigðiskerfisins. 

Lifrarbólga C er alvarlegur og í mörgum tilvikum lífshættulegur sjúkdómur. Talið er að á heimsvísu séu um 180 milljónir manna með sjúkdóminn. Sé sýkingin ekki meðhöndluð getur hún leitt til vaxandi örmyndunar í lifur, skorpulifur, lifrarkrabbameins og lifrarbilunar. Á Íslandi er áætlað að um 800-1.000 manns séu smitaðir af lifrarbólgu C en árlega greinast á bilinu 40-70 einstaklingar. Unnt er að lækna lifrarbólgu C hjá flestum sjúklingum með viðeigandi lyfjagjöf.