Fimm ára gamall sonur Vilhjálms Þ. Á. Vilhjálmssonar fannst foreldrar sínir ósanngjarnir gagnvart sér og ákvað að senda Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands bréf og óska eftir ráðleggingum.
Forsaga málsins er sú að Fannar sem er fimm ára gamall grunnskóla nemandi hafði verið veikur í langan tíma. Snemma einn morguninn vaknar hann hress og ákvað í samráði við foreldra sína að mæta aftur til náms. Það gekk þó ekki betur en svo að við komuna í skólann kom í ljós að Fannar var ekki orðin alveg nógu frískur.
„Eftir að hafa vaknað hitalaus einn októberdag var mikil eftirspurn eftir að komast í skólann. Gangan upp skólatröppurnar var þó erfiðari en venjulega og varð þá ljóst að okkar maður var ekki orðinn frískur og því tilkynnt um veikindi,“ segir Vilhjálmur, faðir á Facebook en RÚV greindi frá atvikum.
Fljótlega eftir heimkomu varð Fannar hressari og lýsti því yfir að nú væri hann tilbúinn til þess að mæta aftur í skólann. Foreldrar Fannars tilkynntu honum þá að hann gæti ekki mætt í skólann þann daginn vegna þess að búið væri að tilkynna veikindi hans.
Þetta fannst Fannari ósanngjarnt og ákvað hann í kjölfarið að senda Guðna forseta bréf og spyrja hann út í þetta.
„Það var litla spennan í dag þegar heima beið bréf frá Bessastöðum,“ lýsir Vilhjálmur. Fannari hafði þá borist svar frá forsetanum.
Þakkaði forsetinn Fannari fyrir bréfið og útskýrir hann eftir bestu getu hvernig best sé að bregðast við í svona stöðu.
„Hafi maður tilkynnt veikindi og mætir svo glaður og hress í skólann vaknar sú hætta að fólk gruni mann um græsku, að maður hafi verið að plata í upphafi og svo snúist hugur, eða fengið samviskubit. En svo getur hitt auðvitað vel komið til álita að maður hafi í raun verið veikur og illa fyrirkallaður en orðið hressari, nánast á augabragði,“ útskýrir Guðni.
Þá segir forsetinn að vangaveltur Fannars séu áhugaverðar en í raun sé ekkert eitt svar til við þeim enda þurfi að skoða hvert tilvik fyrir sig. Minnir hann Fannar þó að að reglurnar séu þannig að hann eigi alltaf að mæta í skólann nema um veikindi eða önnur forföll sé að ræða.