Fann mustang fullan af hænsnaskít

Jói og Jómbi standa gapandi framan við einn Mustanginn í bænum í þætti kvöldsins af Kíkt í skúrinn, en hann hefur vakið verðskuldaða athygli á meðal bílaáhugamanna síðustu vikur - og í reynd slegið í gegn í þeirra ranni.

Það er sumsé tekinn skúr á Jóni Birni Björnssyni, alias Jómba í þætti kvöldsins, en Mustang Fastback 68 módelið sem hann lumar á fann hann í skemmu fyrir austan fjall fyrir um tveimur árum eftir að tengdamamma hans fékk til að fara með sófa þangað í geymslu! Sá hann þá ekki einmitt glitta í trínið á mustangnum og hætti ekki fyrr en hann fékk bílinn keyptan. 

Kagginn a tarna var raunar allur í hengslum og útataður í hænsnakít með fuglabúrum í sætum og segir Jómbi að það hafi verið alger hryllingur að sjá hann svona á sig kominn. En það er víst örugglega liðin tíð;  hann er búinn að gera hann allan upp og er í dag sannkölluð listasmiði enda bíllinn afar öflugur og stórglæsilegur.

Í þætti kvöldsins er líka rætt við Torfa Hjálmarsson gullsmið sem smÍðar líka mótorhjól í frítíma sínum sem er kannski öllu grófari smíði en hann er vanur í sínum daglegu störfum. Hann á meðal annars Dugati mótorhjól og það sem er sérstakt við það er að það er númer 22 af 24 framleiddum hjólum í heiminum af sinni sort. Hjólið er að fullu uppgert og er bara notað á tyllidögum.

Loks verður rætt um Fluid Film undraefnið sem er ryðja sér til rúms hér á landi sem ryðvörn fyrir bíla og allt sem því viðkemur. Þetta er 100% náttúrulegt efni sem unnið er úr dýrafitu og hefur verið notað af bandaríska hernum frá 1955. Það má raunar líka nota á allt leður, sem smurningu, á keðjur, gíra, legur, skrúfbolta og rær, bremsukapla, gírskiptikapla á reiðhjólum og það má jafnvel bóna með því.

Kíkt í skúrinn er á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld.