Fangi kærir blaðamann dv: telja að útlit hans og klæðaburður hafi ekkert fréttagildi

Gunnar Rúnar Sigþórsson hefur kært Ágúst Borgþór Sverrisson, blaðamann DV, til siðanefndar Blaðamannafélagsins. Það er Afstaða, félag fanga, sem kærir Ágúst fyrir hönd Gunnars Rúnars. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu. Gunnar Rúnar var dæmdur í 16 ára fangelsi árið 2011 fyrir að myrða Hannes Þór Helgason. Gunnar Rúnar stakk Hannes 19 sinnum með hnífi. Þótti morðið einstaklega kaldrifjað og hrottalegt og nú 9 árum síðar dvelur Gunnar Rúnar á Vernd, sem er opið úrræði, á vegum Fangelsismálastofnunar.

Árið 2009 vakti ástarjátning Gunnars Rúnars, sem hann birti á Youtube, mikla athygli. Þar játaði hann ást sína til stúlku að nafni Hildur. Sú stúlka reyndist vera unnusta Hannesar Þórs Helgasonar en þau voru vinir, Hildur og Gunnar Rúnar. Árið eftir að  Gunnar Rúnar birti myndbandið myrti hann Hannes Þór með hrottalegum hætti.

Í vor frétti DV að Gunnar Rúnar hefði sést í Hafnarfirði. Í kjölfarið hafði blaðamaður DV samband við Pál Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar, sem tjáði DV að fangar með afbrot á borð við þetta á bakinu þyrftu að afplána tvo þriðju af dómi í það minnsta. Í frétt DV sagði:

„Hins vegar væru alls konar úrræði í boði til að afplána utan fangelsis að hluta fyrir fanga sem sýndu af sér fyrirmyndarhegðun. Páll sagðist þá hafa góðan skilning á því að fólki væri illa við að sjá dæmda morðingja á ferli sem ekki væru búnir að afplána dóm en þarna væru að vegast á ólíkir hagsmunir, því úrræði á borð við t.d. ökklaband eða dagleyfi úr fangelsi gætu verið hluti af betrun og aðlögun manna út í samfélagið.“

\"\"DV birti svo ítarlega umfjöllun um Gunnar Rúnar. Þar kom fram að Ágúst Borgþór hefði reynt að falast eftir viðtali við Gunnar Rúnar fyrir utan Vernd, greint var frá heimilisfangi móður hans og teknar ljósmyndir þar sem fanginn var við störf. Þá var einnig upplýst að Gunnar Rúnar væri á á stefnumótaforritinu Tinder.

Afstaða hefur nú ákveðið að leggja fram kæru vegna umfjöllunarinnar. Í Fréttablaðinu segir að Afstaða geri ýmsar athugasemdir við umfjöllun blaðamanns DV. Í frétt Fréttablaðsins segir að Afstaða geri athugasemdir við að Ágúst Borgþór hafi setið fyrir Gunnari Rúnari fyrir utan áfangaheimilið og falast eftir viðtali. Það skal þó tekið fram af blaðamanni Hringbrautar að Ágúst Borgþór hitti á Gunnar Rúnar fyrir utan Vernd í skamma stund og spurði hvort fanginn treysti sér að veita viðtal. Þegar Gunnar Rúnar svaraði neitandi, hélt fanginn sína leið án frekari athugasemda. Í umfjöllun DV sagði:

Þetta þriðjudagskvöld, um miðjan júlí, var Gunnar klæddur í snotra, prjónaða peysu, vatterað vesti og íþróttabuxur. Hann var hreinn og snyrtilegur. Rautt hárið snöggklippt en ekki snoðað. Hann var með gleraugu með þunnri umgjörð. Þess skal einnig getið að Gunnar var engan veginn óvinsamlegur við blaðamann þrátt fyrir að afþakka viðtal og þó að ávarpið kæmi honum eðlilega á óvart virtist honum ekki ýkja mikið brugðið.

Í kærunni segir einnig að myndir hafi verið teknar af Gunnari Rúnari úr launsátri sem og heimilisfang hans nánustu hafi verið birt. Þá hafi verið greint frá því að bróðir Gunnars Rúnars sé fatlaður. Jafnframt er sagt frá því að faðir Gunnars Rúnar hafi framið sjálfsvíg og Gunnar orðið vitni að því.Í umfjöllun DV um það sagði:

Faðir Gunnars, Sigurþór, fæddur árið 1962, framdi sjálfsvíg árið 1996 á heimili sínu. Það gerði hann í viðurvist Gunnars sem var aðeins níu ára gamall. Feðgarnir munu hafa verið mjög nánir og eins og nærri má um geta var atburðurinn Gunnari gífurlegt áfall. Gunnar er sagður hafa orðið félagslega einangraður í kjölfar atburðarins. Þetta kemur meðal annars fram í frétt Vísis af málinu árið 2011. Þar segir að einangrun hans hafi verið rofin þegar hann kynntist Hildi, unnustu Hannesar. Gunnar varð sjúklega ástfanginn af henni sem leiddi til þess að hann fór að hugleiða að myrða Hannes.

Þá kom einnig fram í umfjöllun DV:

Gunnar ekur um á silfurgráum Suzuki SX4, árgerð 2010. Þrátt fyrir nokkuð háan aldur lítur bíllinn vel út og er með skoðun. Bíllinn er í eigu rúmlega fimmtugrar móður Gunnars. Gunnar hefur lögheimili hjá móður sinni að Klapparholti 6 í Hafnarfirði og þangað virðist hann venja komur sínar reglulega. Á heimilinu býr einnig yngri bróðir Gunnars sem er fatlaður. Sjálfur er Gunnar fæddur árið 1987.

Afstaða telur að Ágúst Borgþór hafi gerst sekur um brot gegn 3. gr. siðareglna blaðamanna sem kveður á um að blaðamaður skuli vanda upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu. Hann skuli sýna fyllstu tillitssemi í vandasömum málum og forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.

Í kærunni er einnig haldið fram að Ágúst hafi falast eftir viðtali án leyfis Fangelismálastofnunnar. Því hefur DV þegar svarað. Þá telur Afstaða að Ágúst hafi sýnt tillitsleysi með því að lýsa klæðaburði, útliti og hárgreiðslu Gunnars Rúnars og borið saman við útlit hans árið 2009. Segir í grein Fréttablaðsins að Gunnar Rúnar hafi ekki kært sig um slík umfjöllun. Útlit hans hafi ekkert fréttagildi sem og myndir þar sem Gunnar Rúnar var við störf fyrir Rauða krossinn. Þá segir í grein Fréttablaðsins:

„ ... um viðkvæm og persónuleg málefni sé að ræða og gæta verði sérstaklega að einkalífsvernd aðstandenda Gunnars, sem beri enga ábyrgð á gjörðum hans.“

\"\"

Í umfjöllun DV sagði: Gunnar starfar í fatasöfnunardeild Rauða kross Íslands. Myndir af Gunnari að störfum þar fylgja fréttinni.

DV hefur þegar svarað þessari gagnrýni með eftirfarandi hætti:

„Fréttaflutningur DV af afdrifum refsifangans Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem banaði Hannesi Þór Helgasyni árið 2010, sætti harðri gagnrýni í vikunni sem leið. Morgunblaðið gagnrýndi sérstaklega að blaðamaður hefði ekki aflað leyfis fangelsismálastjóra fyrir umsátri.

Ekki tók fangelsismálastjóri þó fram hvort slíkra leyfa bæri almennt að afla eða hvort um eiginlegt umsátur væri að ræða.

Blaðamaður beið eftir Gunnari fyrir utan Vernd. Samskipti þeirra voru knöpp og kurteis. Lög um fullnustu refsinga segja að leyfi þurfi að afla fyrir fjölmiðlaviðtali við fanga. Þetta kemur fram í grein sem fjallar um aðgang fanga að fjölmiðlum. Ekki um aðgang fjölmiðla að fanga.

Ekki var um fjölmiðlaviðtal að frumkvæði Gunnars að ræða. Þarna var blaðamaður að ná í staðfestingu á að Gunnar væri þar og gefa honum færi á að koma athugasemd á framfæri. Ekki umsátur í leyfisleysi.“