Fangelsin full af adhd ungmennum

Vilhjálmur Hjálmarsson, stjórnarmaður í ADHD samtökunum, segir að fullyrðingar á vef psychologytoday.com um tíðni ADHD í Frakklandi standist enga skoðun.  Hringbraut fjallaði um samanburð franskra og bandarískra barna samkvæmt greininni þar sem staðhæft er að að 18-falt fleiri amerísk börn séu greind með ADHD en frönsk og skýri menningarmunur og meðhöndlun þetta mikla bil, jafnvel munur á fæði. Hringbraut fékk viðbrögð íslensks sálfræðings sem taldi varhugavert að stórminnka notkun lyfja og taldi málið alls ekki eins einfalt og reifað væri í franska samanburðinum en öll umræða væri góð.

Vilhjálmur tekur undir þetta, fordæmir greinina og segir að allt tal um að miklu færri frönsk börn séu með ADHD en börn í öðrum ríkjum líti framhjá þeirri skuggahlið að stór hluti franskra barna falli burt úr skóla, hátt hlutfall franskra barna reyki og að frönsk fangelsi sé uppfull af ungu fólki með athyglisbrest. 

„Þá sorglegu stöðu má einfaldlega rekja til tregðu Frakka til að viðurkenna ADHD sem taugaþroskaröskun – og eins rótgróinnar andúðar þar í landi á lyfjagjöf, þegar kemur að geðrænum þáttum meðal barna og ungmenna,“ segir Vilhjálmur.

Færslu Vilhjálms um málið má sjá hér.