Píratar hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að alþingismenn skuli gera opinberlega grein fyrir hvers kyns persónulegum hagsmunum sínum eða hagsmunaárekstrum við meðferð máls á Alþingi, annaðhvort með yfirlýsingu á þingfundi, í nefndum þingsins eða á þeim vettvangi sem við á hverju sinni. Um er að ræða breytingu á lögum um þingsköp Alþingis frá 1991, en en annarri grein frumvarps Pírata segir jafnframt að enginn þingmaður megi koma fram sem launaður talsmaður hagsmunasamtaka eða einstaklinga í starfi sem unnið er á vettvangi þingsins. Þá segir loks í þriðju grein frumvarpsins: "Noti alþingismaður upplýsingar sem hann fær í starfi sínu, sem leynt eiga að fara, til að afla sér eða öðrum óréttmæts ávinnings, eða noti hann slíka vitneskju í því skyni, varðar það fangelsi allt að 3 árum."
Í greinargerð frum frumvarpinu er vísað í skýrslu samtaka ríkja í Evrópuráðinu gegn spillingu, GRECO, frá 2013 þar sem mælst til þess að Alþingi taki upp siðareglur fyrir þingmenn og að þeim sé fylgt eftir: Síðar segir: "Með frumvarpi þessu er lagt til að fest verði í lög ákvæði sem eiga að tryggja betur að alþingismenn starfi í þágu almennings í landinu en ekki í þágu sérhagsmuna sinna eða annarra. Flutningsmenn telja mikilvægt að kveðið sé á um þessa þætti sérstaklega í lögum."