Fangelsi, eitur, laun og pólitík

Hann verður fjölbreyttur laugardagsþáttur Þjóðbrautar, sem verður á dagskrá, milli tíu og tólf í fyrramálið.

Fyrsti gesturinn verður Erla Bolladóttir. Síðan koma María Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur og Jónella Sigurjónsdóttir kennari. María hefur veikst vegna mengunar frá kísilveri í Helguvík og Jónella er meðal þeirra kennara sem hafa fengið nóg.

Stjórnmálin verða ekki langt undan og til að ræða þau koma Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Óttarr Proppé.

Stjórnandi þáttarins er Sigurjón M. Egilsson.