Fangavörður varð ástfanginn af fanga

Nýlega kom upp tilvik þar sem fangavörður á Sogni í Ölfusi varð ástfanginn af fanga. Vörðurinn, sem er kona, vann þar við sumarafleysingar - og kvaðst, þegar hún lét af störfum, ætla að hitta fangann áfram þar eð hún væri ástfangin af honum.

Þessi fyrrverandi fangavörður og fanginn eru í sambandi í dag að því er fram kemur í Fréttablaðinu í morgun sem fjallar um málið og ræðir meðal annars við Pál Winkel fangelsismálastjóra sem segir að því miður komi annað slagið upp tilvik af þessu tagi en þau eigi yfirleitt við um fangaverði sem starfi við afleysingjar. Mál af þessu tagi varði brot í starfi.

Fangelsismálastofnun lítur persónuleg samband fanga og fangavarða alvarlegum augum og reynir eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að samskiptin séu óviðeigandi. Margrét Frímannsdóttir yfirmaður í fangelsinu á Litla-Hrauni segir við blaðið að ef starfsmaður og fangi verði of náin sé viðkomandi starfsmaður látinn víkja.

Páll Winkel segir að það sé erfitt að eiga við ástina: \"Það er bara þannig að ungt fólk sem þekkir lítið til í þessum geira virðist sjá einhverja spennu í þessu, eins ótrúlega og það hljómar.\"