Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður, fjallar um kosninguna hjá Eflingu á dögunum þar sem kosið var um hvort fara ætti í verkfallsaðgerðir. Félagsdómur metur nú hvort kosningarnar voru löglegar eftir kæru Samtaka atvinnulífsins, en Haukur reifar fyrirkomulag þeirra sem hann segir vera áhugavert:
„Nokkur verkalýðsfélög ætla nú í verkföll eftir að hafa slitið kjaraviðræðum. Fyrsta verkfallið var samþykkt með 89% greiddra atkvæða. Þrátt fyrir afgerandi niðurstöðu hafa Samtök atvinnulífsins höfðað dómsmál fyrir Félagsdómi til að fá skorið úr um lögmæti verkfallsins. Hvað sem líður lögfræðilegri niðurstöðu málsins, þá hlýtur fyrirkomulag kosninganna að teljast áhugavert.
Nánar á