Fámennur her hjá villa birgis

Verkalýðsfélags Akraness hefur gengið til liðs við VR og Eflingu, stéttarfélögin sem tala hæst um stríð og átök á vinnumarkaði.
 
Fróðlegt er þó að skoða hversu marga hermenn formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, getur sent út á vígvöllinn í margboðuðu stríði.
 
Langflestir félagsmenn Vilhjálms starfa nefnilega hjá álverinu og járnblendinu á Grundartanga.  Þessir starfsmenn lúta sérstökum kjarasamningum, sem renna ekki út fyrir en í árslok 2019.
 
Aðrir starfa hjá sveitarfélögum og ríkinu. Samningar þeirra renna út í lok mars 2019.
 
Samningur sjómanna hjá félaginu rennur út í desember 2019.
 
Svo má áfram telja eins og hægt er að lesa um á vef félagsins (http://www.vlfa.is/index.php/kjaramal). 
 
Á vefnum kemur ekki fram hversu margir liðsmenn eru eftir í félaginu að öllum þessum frátöldum, en heimamenn segja þá varla geta fyllt eina skotgröf í stríðinu.