Gunnar grunaður um að hafa myrt gísla: „ég framdi svívirðilegan glæp sem mun elta mig alla ævi“

Gunnar Jóhann Gunnarsson, sem grunaður er um að hafa drepið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson í Noregi síðustu helgi, hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars fyrir nauðgun, grófar líkamsárásir og rán. Annar Íslendingur er einnig grunaður um aðild að málinu.

Á vef RÚV kemur fram að árið 2002 hafi Gunnar Jóhann verið dæmdur ásamt öðrum manni fyrir að nauðga 16 ára stúlku. Gunnar Jóhann hlaut 22 mánaða fangelsisdóm en hann var þá 19 ára. Árið 2007 var hann dæmdur fyrir líkamsárás og árið 2010 í tveggja ára fangelsi fyrir aðra líkamsárás og frelsissviptingu.

Gunnar Jóhann skrifaði innlegg á Facebook-síðu sína skömmu eftir verknaðinn:

Fyrirgefið mér, en ég get ekki lifað með það vitandi að, Guðfaðir sonar míns, minn besti maður í giftingunni minni, og ég skýrði son minn í höfuð hans, það réttlætir ekki neitt hvað ég gerði, en sársaukinn og hjartað mitt var brotið það mikið að ég framdi svívirðilegan glæp sem mun elta mig alla ævi. En þetta átti ekki að fara svona en þetta var stórslys, ætlaði aldrei að hleypa af.

Bærinn í sárum

\"\"„Hver einasti maður í Mehamn er í sjokki. Við vorum góðir félagar. Þessi drengur var alveg yndislegur og ég get sagt þér að stórt skarð er höggvið í samfélag Íslendinga jafnt og Norðmanna.“

Þetta sagði Sigurður Hjaltested, sjómaður í Mehamn, í samtali við Mbl.is um helgina, um Gísla Þór. Gunnar Jóhann, hálfbróðir Gísla, 35 ára, var handtekinn skömmu síðar, grunaður um að hafa orðið honum að bana. Auk þess var annar 32 ára Íslendingur handtekinn, grunaður um aðild að glæpnum. Sá hefur neitað sök.

Fámennt og afskekkt samfélag

Mehamn er fámennt og afskekkt samfélag í Noregi þar sem tæplega 800 manns búa og samtals um 1.100 manns í sveitarfélaginu Gamvik. Þar af eru um 30 Íslendingar sem búa á svæðinu og hafa þeir verið vel liðnir.

„Íslendingar hafa verið mjög mikilvægur hluti af samfélagi okkar síðustu ár og okkur hefur þótt virkilega vænt um að hafa þá hér. Þeir hafa verið stór hluti af atvinnulífi okkar. Okkur þykir það skelfilega sorglegt að þetta skuli hafa gerst. Hugur okkar er allur hjá hinum látna og fjölskyldu hans,“ segir Øyvind Korsberg, talsmaður bæjarstjórnarinnar í Gamvik, í samtali við Morgunblaðið í dag

„Þetta er mikið áfall fyrir samfélagið hér. Við erum fámennt sveitarfélag þar sem allir þekkjast. Fólki er afar brugðið vegna málsins,“ segir Trond Einar Olaussen, bæjarstjóri Gamvik, í samtali við Vísi

Á laugardag var haldin minningarathöfn um Gísla Þór í bænum, auk þess sem kirkjan í þorpinu Gamvik, sem er í grennd við Mehamn, var höfð opin. Norskir fjölmiðlar höfðu eftir presti kirkjunnar í Gamvik að athöfnin hafi verið tilfinningaþrungin.

„Athöfnin var mjög falleg og þangað komu allir, Íslendingar og Norðmenn. Hann var aufúsugestur á hverju heimili hér,“ segir Sigurður Hjaltested í samtali við Morgunblaðið í dag.

Yfirheyrðir á miðvikudag

Morgunblaðið greinir frá því að lögreglan á svæðinu hafi farið fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald og einangrunarvist yfir Gunnari Jóhanni og vikulangt gæsluvarðhald yfir yngri manninum.

Vísir greinir frá því að mennirnir tveir verði leiddir fyrir dómara í kvöld klukkan 19:00 og 19:30 að staðartíma. Þeir hafa ekki enn verið yfirheyrðir að viðstöddum verjendum og túlki en það verður gert á miðvikudaginn.