\"Mér skilst að flestum þeirra 17 sem voru á borgarafundinum hennar Þóru í Háskólabíói hafi þótt hann nokkuð gagnlegur.\"
Þannig skrifar Garðar Vilhjálmsson á facebook og birtir með myndina að ofan sem tekin var í gærkvöld þegar Rúv stóð fyrir viðamikilli beinni útsendingu um heilbrigðismál, þjóðfund í beinni útsendingu.
Hringbraut spurði Þóru Arnórsdóttur ritstjóra Kastljóss hvort hún hefði orðið fyrir vonbrigðum með mætingu almennings á þjóðfundinn og hvernig hún legði mat á að til hefði tekist.
\"Fínn fundur, góð tilraun,\" segir Þóra.
Í gær greindi Hringbraut frá því að Kári Stefánsson sem fékk hugmyndina að fundinum hefði ekki mátt taka þátt í umræðum með pólitíkusum. Honum var boðið að ræða málin sem sérfræðingur en þáði ekki boðið.
Kári var ekki sáttur. En Hringbraut hefur heyrt í sjónvarpsáhorfendum sem fannst fundurinn fínn eins og Þóra Arnórsdóttir bendir á.
Fámennt á fundi rúv um heilbrigðismál
Fleiri fréttir
Nýjast