Cristiano Ronaldo sagði eftir 3-0 sigur Real Madrid á Juventus í Meistaradeildinni í gærkvöldi að bakfallsspyrnumarkið sem hann skoraði í leiknum sé líklega sitt fallegasta mark á ferlinum. Hann segist hafa reynt um nokkurt skeið að skora svona mark og nú hafi það tekist.
„Þetta á eftir að lifa lengi í minningunni,“ sagði Ronaldo í viðtali við sjónvarpsstöð Real Madrid eftir leikinn.
Glæsimarkið var seinna markið af tveimur sem hann skoraði í leiknum. Ronaldo hefur skorað í öllum 10 Meistaradeildarleikjum liðsins að þessu sinni.
Hér er YouTube myndband af markinu