Falið leyndarmál í reykjavík...

Árangurssögur er þema þáttarins Ég bara spyr sem sýndur var kl.21.30 á Hringbraut í gækvöld en þar er talað við tvo einstaklinga á miðjum aldri, sem hvor um sig náði frábærum árangri til betra lífs, eftir að hafa farið í gegnum náms- og starfsendurhæfingu hjá Hringsjá. Það eru þau Svala Arnardóttir og Þorvaldur Tolli Ásgeirsson sem segja sína sögu, en einnig er rætt við Helgu Eysteinsdóttur, forstöðumann Hringsjár. Hún viðurkennir að Hringsjá sé eins og falið leyndarmál í Reykjavík og segir að sjálfri finnist hún það jafnvel best geymda leyndarmálið. Þar sé unnið merkilegt starf því þangað leitar fólk sem er 18 ára og eldri og hefur af einhverjum ástæðum flosnað úr námi og vinnu. Hjá Hringsjá eru námskeið og skólaeiningar í boði og prógram sérsniðið fyrir hvern og einn. Markmiðið er þó ávallt hið sama: Að viðkomandi komist út á vinnumarkaðinn á ný. Rakel Sveinsdóttir er umsjónarmaður þáttanna og spyr einnig sérstaklega út í árangursmælingar af starfi Hringsjár en þar hefur komið fram að 86% nemenda segja námið hafa eflt sjálfstraust sitt verulega. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Helgu, en þátturinn verður einnig endursýndur á tveggja klukkustunda fresti í allan dag.