Falcon heavy fer á loft í dag

Ef allt gengur að óskum í dag æðir Falcon Heavy geimflaug Elons Musks af stað út í geiminn undir kvöld með rauðan Tesla Roadster sportbíl innanborðs.

Geimskotið er gríðarlega mikilvægt fyrir SpaceX, fyrirtæki Elon Musk, því Falcon Heavy getur flutt þyngri hluti út í geiminn en keppinautarnir fyrir mun minna fé. Afl flaugarinnar er umtalsvert. Hún getur borið rúmlega 60 tonna farm upp í lægri sporbraut um Jörðu, rúmlega 26 tonn á hærri sporbraut og næstum 17 tonn til Mars. Lyftigetan við flugtak er á við 18 Boeing 747 þotur.

Rauða Teslan mun á endanum komast á sporbaug um Mars ef allt gengur upp hjá Musk.

Hægt er að fylgjast með geimskotinu í kvöld á vef SpaceX: http://www.spacex.com/