Árið 2015 var hlutfall fólks á Íslandi sem aldrei reykir tóbak með því hæsta sem gerist í Evrópu. Fólk með háar tekjur er ólíklegra til að reykja en tekjulágir. Þetta merkir að rúmlega áttatíu og eitt prósent fólks á Íslandi reykir aldrei. Ísland er með fimmta hæsta hlutfall fólks sem reykir stöku sinnum en næstlægsta hlutfall fólks sem reykir daglega. Nánar www.hagstofa.is
Félag atvinnurekenda (FA) telur að drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafrettur sé illa undirbúið og illa rökkstutt. FA telur skorta rök fyrir viðamiklu inngripi í athafnafrelsi fólks sem felist í banni við notkun rafretta á tilteknum stöðum. Og að refrettur og áfyllingarílat megi ekki vera sýnileg í verslunum.
Nánar www.atvinnurekendur.is
Tóbasvarnir eiga að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji neyslu tóbaks. Auk þess að veita þeim aukna aðstoð sem vilja hætta að reykja. Embætti landlæknis er með starfsemi á sviði tóbaksvarna sem lýtur að forvörnum og heilseflingum. Nánar www.landlaeknir.is