Fáir eru á ferli á Siglufirði og flestir búnir að gera ráðstafanir vegna stormsins. Nú þegar er byrjað að blása hressilega úr norðri á svæðinu og farið að snjóa.
Ingar Erlingsson tók upp myndskeið fyrir fréttastofu RÚV í morgun þar sem sjá má ástandið á svæðinu en myndskeiðið má sjá með því að smella hér.
Sævar Eyjólfsson íbúi á Siglufirði segir í samtali við RÚV að flestir hafi bundið niður allt sem þarf að binda niður utandyra og einnig tekið inn í hús sem mögulegt er að taka inn í samræmi við leiðbeiningar frá yfirvöldum. Hér má sjá myndskeiðið.