Fáheyrður lúxus í veiðiferð Björgólfs og Beckham

Sennilega hafa fáar veiðirferðir vakið jafnmikið umtal hérlendis og árleg veiðiferð sem Björgólfur Thor Björgólfsson stóð fyrir í Haffjarðará og bauð góðvinum sínum David Beckham og Guy Ritchie.

Þremenningarnir hafa veitt í ánni undanfarin ár og hafa þær ferðir ekki farið framhjá neinum manni enda myndum og myndböndum rignt inn á samfélagsmiðla stjarnanna. Því var ekki fyrir að fara í ár þrátt fyrir að lúxusinn hafi sjaldan verið meiri.

Þannig herma heimildir Hringbrautar að komið hafi verið fyrir sérstöku gufubaði við ána og að auki smíðaður stigi ofan í ískalt vatnið. Framkvæmdin var mikið ánægjuefni fyrir laxastofn Haffjarðarár því veiðifélagarnir dvöldu löngum stundum í gufubaðinu og kældu sig síðan í ánni. Lítið fór því fyrir flugnaköstum.

Háværar kjaftasögur hafa í sumar geisað um ósæmilega hegðun í veiðihúsinu sem hefði leitt til þess að Björgólfur og veiðifélagar hans hefðu verið gerðir brottrækir úr veiðihúsinu en ferðinni lauk fyrr en áætlað var. Mannlíf greindi frá því fyrir rúmri viku að eigandi Haffjarðarár, Óttar Yngvason, vísaði öllum slíkum kjaftasögum á bug.

„Allar þessar sögur um Björgólf Thor og Haffjarðará eru rangar. Hann hefur verið viðskiptavinur okkar í nokkur ár og ekkert komið upp á,” segir Óttar.

Þá var borin undir hann önnur saga um að Björgólfur hefði keypt Haffjarðará eftir ferðina til þess að tryggja aðgang að henni í framtíðinni. Miklar tilfinningar eru í spilunum því langafi Björgólfs, Thor Jensen, var eigandi hennar á sínum tíma. Vísaði Óttar þeirri sögu einnig alfarið á bug.

DV fjallaði einnig um málið og kvaðst blaðið hafa heimildir fyrir því að skemmtikrafar sem voru bókaðir til þess að stytta stundir veiðifélaganna hefðu verið afbókaðir með skömmum fyrirvara.

Yess.PNG

Myndir sem birtust á samfélagsmiðlum árið 2019