Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur kveðst fagna því að fram séu komnir raunverulegir valkostir um flugvöll á höfuðborgarsvæðinu sem ræða þurfi af yfirvegun.
Hann segir mikilvægt að deilendur stígi nú upp úr skotgröfunum og ræði raunverulega kosti af yfiurvegun, aðalatriði í sínum huga séu öruggar og hagkvæmar flugsamgöngur milli höfuðborgar helstu byggðasvæða úti á landi, allir hljæoti að vera sammála um það og engir vilji leggja af þessar samgöngur.
Halldór segist eftir að skoða þá valkosti betur sem fram komi í skýrslu Rögnunefndarinnar um flugvallarkosti, en ætli að taka þátt í umræðunni á næstu vikum með fagfólki og fleirum. Í samtali við RÚV í gærkvöld kvaðst hann fagna því að það stefndi vonandi í einhvers konar frið um innanlandsflugið miðað við þær yfirlýsingar sem hafa komið. Að nú sé einhver valkostur á borðinu og að rekstraröryggi flugvallar í Vatnsmýri verði tryggt þar til hugsanlega verður unnið úr einhverjum öðrum valkosti.
Niðurstaða Rögnunefndarinnar í þá veru að Hvassahraun væri framtíðarkosturinn fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu hefði þó komið sér á óvart: \"É átti ekki von á því, þetta er svo nálægt Keflavík. Ég hef alltaf sagt að innanlandsflug til Keflavíkur komi ekki til greina í mínum huga. Það hafa líka komið ffam skýrslur sem segja að þar með sé innanlandsflug dauðadæmt.“
En hann vonar að niðurstaða nefndarinnar hleypi frjórri og uppbyggilegi umræðu í flugvallarmálið, tími sé til þess kominn.
Nefndarmennirnir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Dagur B. Eggertsson sögðu bæði í gær að umræðan um framtíðarflugvöll yrði að komast upp úr skotgröfunum. Halldór segir að Dagur hafi stuðlað að því að málið færi í skotgrafirnar því meirihlutinn í borgarstjórn hafi keyrt í gegn aðalskipulag þar sem gert sé ráð fyrir að flugvöllurinn í Vatnsmýri fari.
„En ég ætla að taka undir með þeim. Ég vil einmitt að þetta mál sé ekki í skotgröfum. Ég vil ræða þetta af yfirvegun og ég fagna því að það séu komnir valkostir á borðið sem við getum í alvöru skoðað,“ segir Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.