Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist vera upp með sér að hafa fengið skvettu úr koppi forsætisráðherra, en hann muni þvo hana af sér og þurrka.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra skrifaði grein í Fréttablaðið í morgun þar sem hann fer hörðum orðum um málflutning Kára, sem gagnrýndi ríkisstjórnina í gær fyrir að svelta heilbrigðiskerfið. Sigmundur Davíð segir framgöngu Kára ekki aðeins vera ranga og óheiðarlega heldur einnig skaðlega. Kári Stefánsson vildi ekki tjá sig að sinni um efni greinar forsætisráðherra í samtali við Fréttastofu RÚV í dag fyrir utan eftirfarandi: \"Ég er upp með mér að hafa fengið skvettu úr koppi forsætisráðherra. Ég mun þvo hana af mér og þurrka\".